Country Landwell erlendis | vefvísir | Hafðu samband | Lönd  
  Íslenska | English  
Um Landwell
  Þjónusta okkar
Lögmenn
  Aðsetur
 

 

  Heim > Um Landwell  
Um Landwell
Landwell er lögmannsstofa sem leggur áherslu á alhliða lögfræðiþjónustu við innlend og erlend fyrirtæki og stofnanir. Helstu starfssvið okkar eru fjármála- og fyrirtækjalögfræði, yfirtökur og samrunar, millilandaviðskipti, gerðardómsmál, málflutningur, vinnuréttur, Evrópuréttur og samkeppnisréttur. Landwell er sérhæfð lögmannsstofa og leiðandi á sviði fjármála og viðskipta.

Í samræmi við þarfir okkar fyrri og núverandi viðskiptavina hefur Landwell stækkað ört á síðastliðnum árum. Við búum yfir sterku liði lögmanna sem stendur framarlega á sviði fyrirtækja- og viðskiptaviðskiptalögfræði. Lögmenn Landwell hafa víðtæka menntun og reynslu á sínu sviði og hafa lögmannsréttindi á Íslandi, í París og New York.

Við einbeitum okkur að því að setja fram heildarlausnir til viðskiptavina okkar, hvort sem er á Íslandi eða erlendis. Við höfum stofnað til sterkra tengsla við margar helstu lögmannsstofur erlendis sem gerir okkur kleift að þjóna viðskiptavinum okkar á árangursríkan hátt í millilandaviðskiptum. Margir viðskiptavina okkar telja reynslu og sérfræðiþekkingu okkar í millilandaviðskiptum eina af okkar sterkustu hliðum.

Meðal viðskiptavina okkar eru stærstu bankarnir á Íslandi og erlendis, alþjóðafyrirtæki, inn- og útflutningsfyrirtæki, tölvufyrirtæki, stofnanir á vegum hins opinbera, sameignarfélög og fleiri aðilar.

top of page


print


Hafðu samband
  Landwell
Skógarhlíð 12
105 Reykjavik
Sími: 550 05 00
Fax: 550 05 05
Netfang Landwell
Each Landwell law firm is separately owned and managed in accordance with local regulations.
Einkaréttur | Fyrirvari á bótaskyldu | Vefstjóri